27 sep. 2011
Það verða Keflavík og Haukar sem mætast í úrslitaleik Lengjubikars kvenna þetta árið. Liðin sigruðu sína riðla og samkvæmt nýju keppnisfyrirkomulagi mætast efstu liðin tvö í úrslitaleik. Úrslitaleikurinn verður í Dalhúsum, heimavelli Fjölnis, á sunnudaginn kemur kl. 15.00. Keflavík sigraði alla sína leiki en liðið lék gegn KR, Snæfell og Fjölni. Haukar sigruðu líka alla sína leiki gegn Val, Njarðvík, Hamar og Stjörnunni.