27 sep. 2011Haukar ætla að blása til árgangamóts næstkomandi laugardag þann 1. október milli kl. 16.00-19.00. Leikið verður að Ásvöllum og eru fjórir saman inn á í einu, en leiktími er 2x10 mín. Hvert lið fær minnst þrjá leiki á mótinu. Eftir mót verður boðið upp mat í veislusal Hauka og léttar veitingar í boði á sanngjörnu verði. Gjaldgengir eru þeir sem eru fæddir 1981 eða fyrr, hafa æft með Haukum og hafa ekki leikið í efstu tveim deildum síðastliðin tvö ár. Verð er 4.500 kr. á mann og innifalið er matur og miði á leik í meistaraflokki karla. Allar nánari upplýsingar eru á [v+]http://www.facebook.com/pages/Árgangamót-Hauka-%C3%AD-körfuknattleik/218247844898727 [v-]Facebook-síðu[slod-] mótsins eða hjá eftirtöldum aðilum sem einnig sjá um skráninguna: Ívar Ásgríms · ivar@haukar.is Baldur Ólafs · baldur@hafnarfjordur.is Haraldur Sturlu · hallister@gmail.com