25 sep. 2011Í dag að íslenskum tíma lýkur FIBA Asia-keppninni sem fram fer í Wuhan í Kína, en það er Asíumeistaramótið líkt og Evrópumótið sem fram fór í Litháen. Sjá nánar um keppnina [v+]http://london2012.fiba.com/pages/eng/fe/12/olym/p/asid/5195/eid/6232/lid//rid//sid/6232/schedule.html[v-]hérna[slod-] Nú fyrr í dag lauk leiknum um bronsið en það hafði Kórea betur gegn Filippseyjum. Íran hafnaði í fimmta sæti og Líbanon í því sjötta. Það hefur greinilega reynst kínverska liðinu vel að leika tvo æfingaleiki gegn Íslandi í byrjun mánaðarins en því hefur gengið vel á mótinu og leikur til úrslita síðar í dag og mætir þar Jórdaníu í leiknum um gullið. Kína taldi að leikur íslenska liðsins væri svipaður og hjá væntanlegum mótherjum í keppninni og hafa leikirnir vonandi nýst þeim vel líkt og þeir gerðu okkar liði. Alheimssamtök FIBA tilkynntu í lok vikunnar nýjan samstarfsaðila sinn á heimsvísu og er það PEAK íþróttavöruframleiðandinn sem þar um ræðir. Það er íslendingum vel kunnugt, en það hefur nú verið að hasla sér völl á íslenskum markaði síðastliðin ár. KKÍ og PEAK gerðu nýverið einnig með sér samstarfssamning og leikur og klæðist íslenska landsliðið búningum og fatnaði PEAK. Þá mun PEAK vera styrktaraðili á öllum helstu viðburðum á vegum FIBA í öllum heimsálfum. Sjá nánar um samningin [v+]http://www.fiba.com/pages/eng/fc/news/presRele/p/newsid/49620/presReleArti.html [v-]hérna[slod-].