15 sep. 2011
Ólafur Rafnsson, Forseti FIBA Europe og kona hans Gerður og Dalia Grybauskaite, forseti Litháens, sátu saman í heiðursstúkunni á leiknum í gær 8-liða úrslitin Í dag eru tveir stórleikir á dagskránni í 8-liða úrslitunum og einn leikur milli þeirra liða sem töpuðu í gær. Frakkar og Grikkir mætast í fyrri leik dagsins í leik sem ætti að geta orðið spennandi. Frakkland með þá Tony Parker og Joakim Noah í fararbroddi hafa verið að spila mjög vel og eru sigurstranglegri fyrirfram. Í seinni leiknum mætast ósigraðir Rússar og Serbía. Þessar tvær stórþjóðir í evrópskum körfubolta hafa margar hildirnar háð og lið Serbíu er óútreiknanlegt með Milos Theodosic í fararbroddi, en hann er núverandi besti leikmaður Evrópu.
Bo McCalebb var ótrúlegur í gær, var með 23 stig fyrir Makedóníu í sigurleiknum í gær Leikir um sæti Lið heimamanna í Litháen tapaði í gær fyrir Makedóníu í sögulegum leik og fá því það erfiða verkefni að leika aftur í dag við Slóveníu sem tapaði fyrir spánverjum í gær. Það lið sem vinnur í dag fer síðan í framhaldinu að leika um sæti 5.-6. í keppninni en til mikils er að vinna því þau sæti gefa færi á umspili fyrir ÓL2012 í London. Leikirnir eru allir í beinni tölfræðilýsingu hér á kki.is (sjá á spássíu) og fyrir þá sem vilja er hægt að kaupa sér aðgang gegn lágu gjaldi á FIBAtv.com og horfa á alla leiki beint í góðum gæðum.