14 sep. 2011
Í dag hefjast 8-liða úrslit Evrópukeppninnar í Litháen þar sem liðin horfa fram á að vera úr leik um titilinn tapi þau næsta leik. Það er þó til mikils að vinna í framhaldinu því þau lið sem ná sætum 5.-6. hafa tryggt sér sæti á ÓL2012 í London. Sex af þessum átta liðum voru einnig í 8-liða úrslitunum 2007 í Madrid en það eru Spánn, Rússland, Litháen og Grikkland sem komust á síðustu Ólympíuleika en Slóvenía féll úr leik auk Frakklands sem hafði unnið til silfurverðlauna í Sydney árið 2000. Makedónía og Serbía eru nú einnig með í baráttunni, en Makedónía hafa aldrei áður farið í 8-liða úrslit EM né farið á Ólympíuleika. Serbía hafa ekki verið á Ólympíuleikum síðustu tvö skipti eða í átta ár. Leikir miðvikudaginn 14. september: Spánn · Slóvenía Litháen · Makedónía Leikir fimmtudaginn 15. september: Frakkland · Grikkland Rússland · Serbía