12 sep. 2011Utandeild Breiðabliks mun fara fram í ár eins og mörg undanfarin ár. Deildin mun hefjast um miðjan október og standa fram í mars. Hvert lið fær að minnsta kosti 5 leiki. Leikið verður á föstudagskvöldum í Smáranum og sér Breiðablik bæði um dómgæslu og ritaraborð í hverjum leik. Þátttökutilkynningum skal skila á netfangið petur@getraunir.is. Allar frekari upplýsingar um mótið má finna á Breidablik.is/karfa eða með því að senda póst á ofangreint netfang.