11 sep. 2011Í dag klukkan 11:30 að íslenskum tíma leikur íslenska liðið öðru sinni gegn því kínverska. Eftir nokkuð langt og litríkt ferðalag innanlands í gær hefur hópurinn komið sér vel fyrir á hótelinu og búið að taka æfingu í höllinni þar sem leikurinn fer fram. Það er talsverður munur á borgunum sem leikirnir fara fram í en hér í Loudi er meira fjör og og verða bæði liðin að fara á æfingar og í leikinn í lögreglufylgd. Umferðarmenningin hér er með miklum ólíkindum þar sem engar aðrar reglur en að bílstjórar flauta á hvern annan til að láta vita af sér. Leikurinn hefst eins og áður segir klukkan 11:30 að íslenskum tíma. Eftir því sem við best vitum verður leikurinn ekki í beinni útsendingu en við reynum að færa fréttir af leiknum eins og unnt er á meðan á honum stendur. Hópurinn sendir bestu kveðjur heim.