9 sep. 2011Í dag er hver stórleikurinn á dagskránni í körfuboltanum en fjórir leikir eru á dagskránni. Fyrst ber að nefna æfingaleik Kína og Íslands sem hefst rétt fyrir hádegi og er mögulega sýndur á netinu á kínversku CCTV5 stöðinni. Á EM í Litháen mætast síðan Spánverjar og Serbía í milliriðli, en bæði lið hafa leikið einn leik í riðlinum af þremur, og því gríðarlega mikilvægir leikir sem eftir eru. Spánverjar eru í öðru sæti riðilsins á meðan Serbía er í því fjórða, jafnir Tyrkjum. Þýskaland með Dirk Nowitzki fremstan í fararbroddi mæta Hedo Turkoglu og félögum í Tyrklandi. Dirk Nowitzki er aðeins 56 stigum frá því að bæta metið yfir flest stig á lokakeppni EM frá upphafi. Þýskaland eru neðstir í milliriðlinum en Tyrkir eru í harðri baráttu við Serba og Litháa um að komast í 8-liða úrslitin. Að lokum mætast heimamenn í Litháen og Frakkar. Frakkland eru ósigraðir á mótinu til þessa og eru öryggir áfram í 8-liða úrslit þó það séu tveir leikir eftir í milliriðli. Litháen stendur vel að vígi eins og staðan er í dag þar sem þeir eru fyrir ofan Tyrki og Serbíu en nóg er eftir af keppninni í þessum gríðarlega sterka milliriðli. Staðan í riðlinum: (fjögur efstu fara áfram) 1. Frakkland · 6 stig 2. Spánn · 5 stig 3. Litháen · 5 stig 4. Serbía · 4 stig 5. Tyrkland · 4 stig 6. Þýskaland · 3 stig