8 sep. 2011Íslenska landsliðið er komið á ról í Kína eftir langt ferðalag og er liðið byrjað að æfa og undirbúa sig fyrir fyrri leikinn gegn Kína sem verður um hádegisbilið á morgun föstudag, en tímamismunurinn er +8 tímar svo kvöldleikur í Kína verður að hádegisleik að íslenskum tíma. Á meðfylgjandi mynd, sem fararstjórar tóku af leikvanginum, má sjá fána þjóðanna yfir leikvellinum á æfingu í gær. Fleiri myndir frá ferðinni er að finna á [v+]http://www.facebook.com/media/set/?set=a.2138271149147.114212.1617206252&type=1[v-]Facebook-síðu KKÍ[slod-].