8 sep. 2011
Sarunas Jasikevicius, Litháen og Milos Teodosic, Serbíu, voru báðir frábærir í gær Í dag er komið að næstu þremur leikjunum í keppni í milliriðlum á EM. Í F-riðli mætast í dag Georgía og Makedónia, Finnland og Rússland og Slóvenía og Grikkland. Leikirnir hefjast kl. 12.00, 15.30 og 18.00 og eru í beinni á síðu keppninnar og fyrir þá sem vilja kaupa aðgang á FIBAtv.com, í beinni á netinu. Í gær sigruðu heimamenn Serba í skemmtilegum leik þar sem Litháen léku frábærlega og höfðu mikilvægan sigur. Fjögur lið af sex fara áfram í 8-liða úrslit og hvert stig mikilvægt í riðlinum. Í húfi er ekki bara sigur í keppninni heldur komast topp sex þjóðirnar á Ólympíuleikanna í London 2012.