7 sep. 2011Íslenska landsliðið er nú um þessar mundir að koma að hótelið í Xuchang City eftir að hafa flogið í átta og hálfa klukkustund til Peking og þaðan með flugi innanlands þar sem að lokum var klukkustundar rútuferð frá flugvelli á hótelið. Það mun því vera kærkomin hvíld hjá liðinu eftir um 28 klst. ferðalag frá Íslandi. Allt hefur gengið vel hingað til og við tekur hvíld og æfingar fram á föstudag. Tímamismunurinn er um +8 tímar þannig að leikurinn verður í kringum hádegið að íslenskum tíma en KKÍ mun birta fréttir ef hægt verður að fylgjast með honum í Beinni tölfræðilýsingu á netinu og/eða sjónvarpsútsendingu á netinu.