6 sep. 2011Því miður kom upp sú staða að tveir leikmenn íslenska landsliðsins sem var á leið til Kína í morgun, urðu að draga sig úr hópnum rétt fyrir brottför. Þar sem fyrirvarinn var svo lítill var ekki hægt að taka inn leikmenn í þeirra stað vegna mikillar pappírsvinnu. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Logi Gunnarsson, sem dró sig úr hópnum vegna veikinda, og Helgi Már Magnússon af persónulegum ástæðum. Það eru því 10 leikmenn sem eru á leiðinni frá Stokkhólmi til Peking þessa stundina ásamt þjálfurum, sjúkraþjálfara og fararstjórum.