6 sep. 2011Í gær lauk fyrstu umferð á Evrópumótinu í Litháen. Keppni í A, B, C og D-riðlum er lokið og ljóst hvaða 12 lið fara áfram í keppninni. Dagurinn í dag er frídagur hjá öllum liðunum en á morgun hefst fjörið að nýju með hverjum stórleiknum Í E-riðli komust heimamenn áfram auk Þýskalands en eftir sitja lið eins og Pólland, Ítalía og Ísrael. Í F-riðli urðu Króatía, Bosnía og Svartfjallaland öll eftir fyrir tilstuðlan góðs gengis Makedóníu og Finnlands, en þessi lið hafa komið einna mest á óvart í keppninni. Gaman er að því að Finnland lék í umspili við þrjár þjóðir til að komast inn á EM að þessu sinni og hafa sannarlega sýnt að þeir eiga fullt erindi í keppnina. Stutt er síðan að keppnisfyrirkomulaginu var breytt og fjöldi liða aukin úr 16 í 24. Einhverjir forsvarsmenn stærri þjóðanna höfðu efasemdir um að þá ákvörðun, en úrslit á mótinu til þessa ættu að hafa kveðið niður þær raddir, þar sem leikir hafa verið jafnir og spennandi og óvænt úrslit orðið í riðlakeppninni. Milliriðlar: Lið taka með sér þau stig sem þau hafa fengið í leikjunum gegn þeim liðum sem voru með þeim í riðli. E-riðill: 1. Frakkland 2. Serbía 3. Spánn 4. Tyrkland 5. Litháen 6. Þýskaland F-riðill: 1. Makedónía 2. Rússland 3. Slóvenía 4. Grikkland 5. Georgía 6. Finnland