5 sep. 2011Í fyrramálið heldur íslenska landsliðið til Kína í æfingaferð í boði kínverska körfuknattleikssambandsins. Liðið leikur tvo leiki gegn heimamönnum. Héðan frá Íslandi heldur hluti leikmanna og fararstjórn til móts við þá sem eru erlendis og sameinast allir í Stokkhólmi áður en haldið er til Kína. Kínverska körfuknattleikssambandið greiðir allan kostnað vegna fararinnar, það er öll flug, ferðalög milli keppnisstaða, gistingu og fæði. Þetta er í annað sinn á 6 árum sem kínverska körfuknattleikssambandið býður því íslenska til Kína. Kína bar sigur á Íslandi í báðum leikjunum í ágúst 2005. Kína lítur á Ísland sem góðan kost í sínum undirbúningi fyrir Asíuleikana sem fara fram seinna í september þar sem leikstíll okkar er ekki ósvipaður og hjá sumum af andstæðingum kínverska liðsins á leikunum. Markmið Kína er að komast á Olympíuleikana í London 2012. Það verður talsvert ferðalag á hópnum innan Kína þar sem m.a. þarf að fljúga í tveimur flugum til að komast til borgarinnar þar sem seinni leikurinn fer fram. Fyrri leikur liðsins fer fram föstudaginn 9. september í Xuchang City en seinni leikurinn fer fram sunnudaginn 11. september í Loudi City. Tvær breytingar hafa orðið á liðinu frá því liðið fór á Norðurlandamótið í síðasta mánuði en þeir Hörður Axel Vilhjálmsson og Haukur Helgi Pálsson gátu ekki farið með liðinu til Kína og hafa þeir Ægir Þór Steinarsson og Jón Ólafur Jónsson verið valdir í þeirra stað. Tímamismunur er +9 klukkustundir en KKÍ mun birta fréttir og myndir úr ferðinni á kki.is og fleiri upplýsingar þegar nær dregur leikjunum. Liðið er skipað eftirtöldum leikmönnum: 4 · Brynjar Þór Björnsson · Jamtland, Svíþjóð Hæð 190 cm · Fæddur ‘88 · 13 landsleikir 5 · Jón Ólafur Jónsson · Snæfell Hæð 198 cm · Fæddur ‘81 · Nýliði 6 · Jakob Sigurðarson · Sundsvall, Svíþjóð Hæð 192 cm · Fæddur ‘82 · 48 landsleikir 7 · Finnur Atli Magnússon · KR Hæð 205 cm · Fæddur ‘85 · 6 landsleikir 8 · Hlynur Bæringsson · Sundsvall, Svíþjóð Hæð 200 cm · Fæddur ‘82 · 51 landsleikir 9 · Jón Arnór Stefánsson · CAI Zaragoza, Spáni Hæð 196 cm · Fæddur ‘82 · 51 landsleikir 10 · Helgi Már Magnússon · Uppsala, Svíþjóð Hæð 197 cm · Fæddur ‘82 · 66 landsleikir 11 · Ólafur Ólafsson · Grindavík Hæð 190 cm · Fæddur ‘90 · 4 landsleikir 12 · Pavel Ermolinski · Sundsvall, Svíþjóð Hæð 200 cm · Fæddur ‘87 · 18 landsleikir 13 · Ægir Þór Steinarsson · Fjölnir / Newberry College Hæð 188 cm · Fæddur ‘88 · Nýliði 14 · Logi Gunnarsson · Solna, Svíþjóð Hæð 190 cm · Fæddur ‘81 · 80 landsleikir 15 · Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Grindavík Hæð 204 cm · Fæddur ‘88 · 25 landsleikir Þjálfari: Peter Öqvist Aðstoðarþjálfari: Helgi Jónas Guðfinnsson Aðstoðarþjálfari: Pétur Már Sigurðsson Sjúkraþjálfari: Haukur Þór Sveinsson Fararstjórar: Eyjólfur Þór Guðlaugsson og Friðrik Ingi Rúnarsson