5 sep. 2011Dagana 10.-11. september næstkomandi mun seinni helgi Afreksbúða KKÍ fara fram. Fyrri helgin fór fram 20.-21. ágúst og tókst mjög vel en þá æfðu allir á Álftanesi. Stúlkur munu æfa í Keflavík og drengir á Selfossi á eftirfarandi tímum: Stúlkur: Laugardagur: 14-16 og 17-19 Sunnudagur: 12.30-14.30 og 15.30-17.30 Strákar: Laugardagur: 13-15 og 16-18 Sunnudagur: 10-12 og 13-15