1 sep. 2011
Í gær byrjaði Evrópukeppnin í Litháen af fullum krafti og fóru fyrstu 12 leikir mótsins fram í gær. Í dag er svo komið að næstu tólf leikjum og þar eru nokkrir athyglisverðir leikir á dagskránni. Nágrannarnir Portúgal og Spánn mætast, en fyrirfram á Spánn að hafa öruggan sigur. Portúgal var síðasta liðið til að komast inn á mótið eftir umspil og spánverjar eru gríðarlega sterkir líkt og undanfarin ár og eru fyrirfram líklegir til að fara langt í ár. Finnar eru eina norðurlandaþjóðin á EM og eru þeir að leika í annað sinn í lokakeppninni. Þeir mæta sterku liði Grikkja í dag, en töpuðu naumt fyrir Króatíu í gær eftir að hafa verið í jöfnum leik fram á síðustu mínútur. Fyrrum samlandar Bosníu og Svartfjallalands mætast, en Svartfjallaland er í fyrsta sinn að keppa á EM, en þeir voru að hefja leik sem þjóð árið 2009 þegar þeir léku í riðli með Íslandi og heimsóttu okkur heim í Laugardalshöllina. Ítalía og Þýskaland mætast einnig í dag en Ítalía er með sterkara lið en þeir hafa verið með undanfarin ár og Þýskaland með Dirk Nowitzki (25 stig) og Chris Kaman (18 stig, 10 fráköst) í fararbroddi sigruðu Ísrael í gær. Allir leikirnir eru í beinni tölfræðilýsingu á eurobasket2011.com og hægt er að kaupa aðgang að beinum útsendingum á FIBATV.com. Hér til hægri á heimasíðu KKÍ.is er yfirlit yfir leikjum dagsins. Leikir dagsins: Portúgal · Spánn Lettland · Serbía Bosnía · Svartfjallaland Búlgaría · Belgía Bretland · Tyrkland Ísrael · Frakkland Finnland · Grikkland Georgía · Rússland Póland · Litháen Ítalía · Þýskaland Makedónía · Króatía Úkraína · Slóvenía