30 ágú. 2011Reykjanes Cup, Ljósanæturmót í meistaraflokki karla fer fram dagana 30. ágúst til 2. september og fer mótið fram í Reykjanesbæ fyrir tilstuðlan körfuknattleiksdeilda UMFN og Keflavíkur í samstarfi við Reykjanesbæ. Leikið er í Ljónagryfjunni á þriðjudag, á Sunnubrautinni á miðvikudag og fimmtudag og svo er leikið um öll sæti á föstudeginum í Ljónagryfjunni. Þriðjudagur 30. ágúst í Njarðvík 18:30 Fjölnir · Grindavík 20:30 Snæfell · Njarðvík Miðvikudagur 31. ágúst í Keflavík 18:30 Njarðvík · ÍR 20:30 Grindavík · Keflavík Fimmtudagur 1. september í Keflavík 18:30 ÍR · Snæfell 20:30 Keflavík · Fjölnir Föstudagur 2. september í Njarðvík 17:00 5-6 sæti 19:00 3-4 sæti 21:00 Úrslitaleikur ÍR sigruðu á síðasta ári á Reykjanescup og eiga því titil að verja í ár.