29 ágú. 2011
Eftir aðeins tvo daga, á miðvikudaginn kemur kl. 13.15 að íslenskum tíma, er komið að því að Evrópukeppnin 2011 hefjist í Litháen. Liðin 24 eru orðin klár en Finnar og Portúgal náðu að tryggja sér siðustu sætin á lokakeppninni í ár. Mörg þessara liða hafa verið að spila æfingaleiki að undanförnu og verið að fíntpússa leikmannalistana sína fyrir brottför til Litháen. Íslandsvinirnir sem landsliðið spilaði gegn í Evrópukeppninni 2009, lið Svartfjallendinga, lék æfingaleik gegn Tyrkjum nú á dögunum og eftir jafnan leik höfðu tyrkirnir tveggja stiga sigur. Emes Kanter, nýliði í NBA og í landsliði Tyrkja var stigahæstur með 13 stig og 8 fráköst en Svartfjallaland lék án sinnar helstu stjörnu í teignum Nikola Pekovic sem var hvíldur vegna smávægilegra meiðsla. Ólafur Rafnsson lagði af stað í morgun til Litháen en hann mun að sjálfsögðu setja mótið, sinna skyldustörfum á meðan því stendur og veita sigurverðlaunin í mótslok sem forseti FIBA Europe. Sjá nánar á [v+]http://www.eurobasket2011.com/en/default.asp [v-]eurobasket2011.com[slod-].