18 ágú. 2011
Í dag eru tæpar tvær vikur í að opnunarleikur Evrópumótsins í Litháen hefjist en þá mætast Spánn og Pólland og Serbía og Ítalía í fyrstu leikjum dagsins. Hægt er að skoða allt um mótið á [v+]http://www.eurobasket2011.com/en/default.asp[v-]www.eurobasket2011.com[slod-] og sjá riðla og leikjaplan. Að venju verður hægt að kaupa sér aðgang á FIBA TV gegn sanngjörnu gjaldi á netinu en útsendingarnar þar eru í frábærum gæðum. Finnar stefna hraðbyr á laust sæti á EM en þeir eru í umspili gegn Portúgal og Ungverjalandi. Þeir hafa nú þegar sigrað Ungverja á útivelli og lið Portúgals á heimavelli þannig að þeir eru í góðum málum. Tvö lið fara áfram á EM. Það lið sem hafnar efst í umspilinu leikur í gríðarlega sterkum C-riðli með Bosníu, Makedónu, Króatíu, Svartfjallalandi og Grikklandi. Lið tvö sem fer áfram leikur í A-riðli með Póllandi, Bretlandi, Tyrkjum, heimamönnum í Litháen og Spánverjum.