15 ágú. 2011Sigmundur Már Herbertsson, FIBA dómari, mun dæma í þessum mánuði tvo landsleiki karla, í Evrópukeppni B-deildar. Lokakeppnin fer fram í Litháen, hefst eftir 17 daga, en þau lið sem léku í B-deildinni í vetur eru að klára keppni og tryggja sér sæti í styrkleikaflokk því næst verður keppnisfyrirkomulaginu breytt og verða öllum liðunum sem taka þátt skipt í riðla eftir styrkleika. Þá munu þau lið sem hafna efst í hverjum riðli fara beint í lokakeppnina. Þann 15. ágúst mætast í Norrköping í Svíþjóð heimamenn og Rúmenía í B-deildinni. Meðdómarar hans verða frá Ítalíu og Póllandi. Þann 24. ágúst mætast í Tallinn, Eistlandi, heimamenn og íslandsvinir okkar Hollendingar. Meðdómarar Sigmundar verða frá Lettlandi og Litháen.