14 ágú. 2011
Kristinn G. Pálsson og Þórólfur Heiðar Þorsteinsson Þórólfur Heiðar Þorsteinsson er þriggja-stiga meistari Sumardeildarinnar 2011. Þriggja-stiga keppnin var á milli undanúrslita og úrslita í gær. Hvert lið átti tvo skotmenn en Glímufélagsmaðurinn Þórólfur Heiðar Þorsteinsson varð hlutskarpastur með níu stig. Kristinn Geir Pálsson, íþróttafulltrúi KKÍ, afhenti honum verðlaunin í gær. Lokastaðan: 1. Þórólfur Glímufélagið 9 stig 2. Alex Team DC 8 stig 3. Stefán Már Gullni Örninn 8 stig 4. Dovitas Lituanica 8 stig 5. Arturas Lituanica 7 stig 6. Ásgeir Glímufélagið 5 stig 7. Lúðvík Gullni Örninn 4 stig 8. Ágúst Team DC 2 stig