9 ágú. 2011Þann 13.ágúst næstkomandi klukkan 15:00 verður haldið götukörfuboltamót í íþróttahúsinu á Hellu. Keppt verður bæði í karla og kvennaflokkum ef þátttaka verður nægilega mikil en 3-4 eru í hverju liði, þ.e.a.s. 3 spila inná í einu og einn varamaður. Spilað er uppí ellefu, tvö og eitt stig fyrir körfurnar. Vinningarnir eru ótrúlega góðir, má meðal annars nefna Ribsafari (sigling í Vestmannaeyjum), riverrafting á Hvítá, hótelgistingar á Suðurlandi, ísveislu frá Kjörís, gistingar í skálum Ferðafélags Íslands, gjafabréf í Riverside Spa Selfossi og margt fleira. Í lok móts veður öllum keppendum boðið í grillveislu og einnig verður boðið uppá Lax frá Fiskás á Hellu. Þátttökugjald er 5000 kr á lið. Skráning er hjá Inga Hlyn; siringi@hotmail.com , 864-5950 eða hjá Kristjáni 846-6569 [v+]http://www.youtube.com/watch?v=CuxyeDGzggA[v-]Myndbandsauglýsing[slod-]