
8 ágú. 2011FIBA dómararnir þeir Sigmundur Már og Björgvin hafa verið að sinna dómaraverkefnum fyrir FIBA Europe í júlí. Í gær lauk keppni í Evrópukeppni U16 ára drengja sem fram fór í Tékklandi en þar var Sigmundur Már Herbertsson að dæma sem hlutlaus dómari. Til úrslita léku heimamenn og Króatía þar sem Króatía fagnaði sigri. Björgvin Rúnarsson dæmdi einnig sem fulltrúi Íslands á U20 ára keppni karla í B-deild þar sem íslenska liðið lék í Bosníu í júlí síðastliðinum þar sem Ísland lenti í 14. sæti.


