4 ágú. 2011Grindavík hefur dregið lið sitt úr keppni í Iceland Express-deild kvenna fyrir næstu leiktíð og skráð liðið í 1. deild kvenna. Fjölnir, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, mun skipa lausa sætið og því verður deildin skipuðu átta liðum. Þannig að Grindavík og Fjölnir skipta á sætum í deildinni. Einnig dregur Grindavík lið sitt úr Lengjubikarnum sem hefst í september.