3 ágú. 2011Körfuknattleiksdeild UMFN, í samvinnu við Ljósanæturnefnd í Reykjanesbæ, mun standa fyrir hraðmóti í körfuknattleik fyrir meistaraflokk kvenna. Þetta verður í fjórða skipti sem mótið er haldið. Áætlað er að mótið fari fram dagana 31. ágúst – 2. september (miðvikudag – föstudag). - Þátttökugjald er kr. 25.000,- pr. lið. - Reiknað er með að leikirnir verða 4*8 mín. og klukkan stoppuð í vítum ásamt síðustu mínútunni í hverjum leikhluta. - Líklegast verða tveir riðlar. Fjögur eða fimm lið í hvorum riðli. Skráning og upplýsingar í síma 858-6020 eða í tölvupósti shol@isavia.is.