29 júl. 2011Búið er að draga í töfluröð fyrir Iceland Express-deild kvenna á næstu leiktíð. Íslandsmeistararnir úr Keflavík hefja tímabilið á því að fara til nágranna sinna í Grindaví og nýliðar Vals fá heimaleik gegn Snæfelli. Silfurlið síðasta tímabils, Njarðvík, fara stutta ferð á Reykjanesbrautinni og skella sér í Hafnarfjörð og etja kappi við Hauka. Á síðasta körfuknattleiksþingi var fyrirkomulaginu breytt í IE-deild kvenna á þá leið að A og B-riðlar voru aflagðir og í staðinn verða öll liðin í einni deild frá upphafi til enda. Leiknar verða fjórar umferðir sem þýðir að umferðirnar eru í heildina 28. Fyrsta umferð: Grindavík-Keflavík Valur-Snæfell Haukar-Njarðvík KR-Hamar Önnur umferð: Snæfell-Haukar Grindavík-Valur Njarðvík-KR Keflavík-Hamar [v+]http://www.kki.is/widgets_competition.asp?league_id=189#[v-]Leikjadagskrá IE-deildar kvenna 2011-12[slod-]