27 júl. 2011 Nú styttist í að leikmenn íslenska liðsins fari frá hótelinu í íþróttahöllina í Sundsvall og geri sig klára fyrir leikinn sem hefst kl. 16.00 að íslenskum tíma, en framundan er leikurinn um 3. sætið gegn Noregi. Leikurinn verður í beinni tölfræði lýsingu hér á kki.is. Hér að ofan er hægt að sjá tvær troðslur frá Herði Axel í leiknum gegn dönum í fyrradag.