27 júl. 2011Við verðlauna afhendinguna við mótslok á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sundsvall nú í kvöld var tilkynnt hverjir skipa úrvalslið mótsins. Heimamennirnir Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson voru valdir í liðið en auk þeirra voru þeir Christian Maraker, Svíþjóð og Petteri Koponen og Teemu Rannikko frá Finnlandi í úrvalsliðinu.