23 júl. 2011Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði í kvöld sínum fyrsta leik á Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð gegn heimamönnum. Lokatölur urðu 74:62 svíum í vil, en svíar jöfnuðu með flautukörfu um leið og fyrri hálfleik lauk, staðan í hálfleik var 36:36, en Ísland hafði verið yfir allan leikinn fram að því. Svíar komu ákveðnari til leiks eftir hlé því þeir skoruðu 10 fyrstu stig leiksins. Mikil barátta og þrek fór í að vinna upp muninn en munurinn var lengi vel 5 stig og íslensku strákarnir oft nálægt því að jafna leikinn. Svíar náðu þó að svara fyrir sig á mikilvægum augnablikum og höfðu að lokum sigur. Í ljósi þeirra hörmulega atburða sem áttu sér stað í Noregi var mínútuþögn í dag í leikjum dagsins og á morgn munu öll liðin spila með sorgarbönd til að votta norsku þjóðinni samúð og samhug. Allir hér á norðurlandamótinu eru harmi slegnir yfir þeim vofeiglegu atburðum sem hafa átt sér stað hjá frændum okkar. Norska liðið mætti í dag á keppnisstað og æfðu í kvöld en leikur þeirra er á morgun gegn svíum. Því miður var tölfræðilýsingin ekki í beinni en verið er að lagfæra það svo leikirnir verði aðgengilegir á morgun og það sem eftir lifir af mótinu. Jón Arnór Stefánsson meiddist á öxl eftir einungis þriggja mínútna leik, en hann hvíldi það sem eftir lifði leik eftir að læknir hafði skoðað meiðslin. Þau eru ekki talin alvarleg en það kemur í ljós á morgun hvernig verður með framhaldið. Helsta tölfræði úr leiknum í kvöld: Stigahæstur Íslendinga var Jakob Örn Sigurðarson með 22 stig en næstur kom Hlynur Bæringsson með 12 stig, hann tók einnig 9 fráköst og gaf 4 stoðsendingar en lenti snemma í villuvandræðum. Pavel Ermolinskij skoraði 9 stig og tók 10 fráköst, Helgi Magnússon skoraði 5 stig, Logi Gunnarsson og Jón Arnór Stefánsson skoruðu 3 hvor. Finnur Atli Magnússon, Ólafur Ólafsson, Sigurður Þorsteinsson og Hörður Axel Vilhjálmsson skoruðu 2 stig hver en Hörður fékk sína fimmtu villu í þriðja leikhluta.