22 júl. 2011Í dag eru síðustu æfingarnar og vídeófundir fyrir fyrsta leik á morgun laugardag gegn heimamönnum í Svíþjóð. Eftir æfingu í dag verður blaðamannafundur með þjálfara og fyrirliða Íslands, Svíþjóðar og Finnlands. KKÍ stefnir að þvi að taka upp blaðamannafundinn og setja á youtuberás sína á morgun, en það verður tilkynnt á kki.is þegar það verður komið inn. Á leikdag mun síðan stærsta stjarna Svía, NBA-leikmaðurinn Jonas Jerebko hjá Detroit Pistons, leyfa öllum sem vilja mæta að spyrja sig spjörunum út fyrir leikinn gegn Íslandi um lífið í NBA-deildinni. Eftir leikinn mun hann svo gefa eiginhandaráritarnir til aðdáenda, en Jerebko mun ekki leika með liði Svía að þessu sinni. Mikil spenna ríkir í Sundsvall og hjá Svíum fyrir leikinn gegn Íslandi enda þjálfarinn heimamaður og sex leikmenn á leiðinni að leika í sænsku úrvalsdeildinni á næsta ári, þar af þrír hjá Sundsvall Dragons, þeir Jakob, Hlynur og Pavel. Hægt er að skoða Facebook-síðu mótsins [v+]http://www.facebook.com/2011NC [v-]hérna[slod-]. [v+]http://dagbladet.se/sport/1.3734574-nye-islanningen-ar-pa-plats [v-]Viðtal við Pavel í Dagbladet[slod-]. [v+]http://dagbladet.se/sport/1.3734573-oqvist-leder-den-islandska-nystarten [v-]Viðtal við Peter Öqvist[slod-].