22 júl. 2011Á vef KKÍ er nú hægt að nálgast nýtt keppnisdagatal vetrarins sem og mótaplan yngri flokka [v+]http://www.kki.is/motahald.asp [v-]hér[slod-]. Í vetur verða tímasetningar á bikarumferðum yngri flokka með breyttu sniði. Reynt var að færa til umferðir ákveðinna flokka í þeim tilgangi að reyna að láta keppnistímabil flokkana fljóta betur. En áður var það þannig að 16-liða úrslit allra flokka fór fram á sama tíma. Vonandi heppnast þessi tilraun en eins og áður verða úrslit allra flokka á sömu helgi og sama keppnisstað.