22 júl. 2011Sigurður Gunnar Þorsteinsson er miðherji í landsliði Íslands og leikur í treyju númer 15. Fullt nafn: Sigurður Gunnar Þorsteinsson Hæð: 204 Aldur: 23 Gælunafn: Siggi Giftur / sambúð? Sambúð Börn: engin Hvað eldaðir þú síðast? Lambafille á muurikkapönnunni, mæli með að allir fái sér svoleiðis!!! Ertu matvandur, er eitthvað sem þú borðar alls ekki? ÉG matvandur? ekki þekktur fyrir það! Hvað seturðu á pizzuna þína? pepperoní, lauk, ólífur, papriku og sveppi. Uppáhalds vefsíða? nbaisland.blogspot.com er í miklu uppáhaldi. Frægasti vinur þinn á Facebook? Valtýr Björn! Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki (ef já, hvernig þá)? Já, ég geri alltaf sömu rútínuna inni í klefa. Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Ég byrjaði að fylgjast með körfubolta útaf Michael Jordan, og hef alltaf haldið mikið upp á hann. Erfiðasti andstæðingur? Ætli það sé ekki Nikola Pekovic miðherji Minnesota Timberwolves Sætasti sigurinn? Sigurinn á Evrópumeisturunum frökkum á Evrópumótinu U18 er í miklu uppáhaldi! Mestu vonbrigði? 5. leikur á móti Snæfelli í fyrra og fjórframlengdi leikurinn á móti KR fyrir tveimur árum Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum í þitt lið, hver yrði það? Dennis Rodman Segðu okkur frá skemmtilegu / skondnu atviki sem gerst hefur í leik: Man ekki eftir neinu sérstöku í leik en man eftir einu skondnu atriði úr unglingalandsliðsferð þar sem Hörður Helgi (leikmaður Vals) og Hafþór Júlíus (sterkasti maður Íslands) höfðu deilt herbergi saman í 4 daga. Seinasta kvöldið var Haffi að tannbursta sig inn á baði og Höddi labbar inn á baðherbergið og spyr hvað í ósköpunum Haffi sé að gera með sinn tannbursta í munnvikunum, og þá svara Haffi að þetta sé sinn tannbursti og þeir fóru eitthvað að þræta um þetta og komust að því að þeir höfðu deilt sama tannburstanum í 4 daga. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 15 ára á Ísafirði Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Skutulsfjörður Vandræðalegasta augnablik? Ætli það sé ekki fyrsta viðtalið mitt í Keflavík eftir úrslitaleik í Poweradebikarnum sem við unnum, held að það hafi ekki skilst eitt orð sem ég sagði :) Hver á ljótasta bílinn í liðinu? Hörður Axel ekki spurning Hver er fyndnastur í liðinu? þetta er hörð barátta milli Brynjars og Óla Óla, en Brilli veit sjaldnast af því að hann sé fyndinn Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Virkilega góður dansari Uppáhalds: Lið í NBA: Chicago Bulls Lið í Evrópska körfuboltanum: Ekkert sérstakt lið Leikmaður í körfu: Derrick Rose er í miklu uppáhaldi Erlenda hljómsveit: enginn sérstök Innlenda hjlómsveit: Hjálmar Bíómynd: get ekki gert upp á milli góðra mynda Sjónvarpssería: How I met your mother