21 júl. 2011Núna kl. 07.00 í morgun að íslenskum tíma var fyrri æfing dagsins hjá íslenska landsliðinu, en æft var á keppnisvellinum, heimavelli Sundsvall Dragons. Peter þjálfari er að stilla liðið inn á sænskan tíma með því að byrja strax á fyrsta degi í rútínu en tímamismunurinn er tveir tímar yfir sumarið og því æfingin kl. 9.00 að sænskum tíma. Liðið tók léttar æfingar í upphafi og síðan var skotið mikið. Síðar í dag verður tekið meira á því og farið í spil og taktík en æfingin er kl. 14.00 að íslenskum tíma. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá æfingunni í morgun