20 júl. 2011A-landslið karla hélt í morgun af stað til Svíþjóðar og flaug til Stokkhólms með Iceland Express. Þaðan tók svo við fjögurra tíma rútuferð áleiðis til Sundsvall. Nú er liðið komið á hótel í miðbæ Sundsvall og leikmenn og fylgdarlið búnir í kvöldmat. Framundan er afslöppun eftir ferðalagið og hvíld. Í fyrramálið er síðan morgunæfing og síðdegis er svo blaðamannafundur með íslenska liðinu og önnur æfing þar á eftir.