19 júl. 2011Peak Ísland og Körfuknattleikssamband Íslands hafa gert með sér styrktarsamning. Þessi samningur felur í sér að Peak verður einn af samstarfsaðilum KKÍ og A-landslið karla í körfuknattleik mun leika í Peak fatnaði á Norðurlandamóti sem hefst 23. júlí í Sundsvall í Svíþjóð, auk þess sem A-landslið kvenna í körfubolta mun innan tíðar leika í Peak merkinu. Samningurinn gildir til 1. október 2014. Þá hafa báðir aðilar áhuga á að skoða fleti á frekara samstarfi í framtíðinni og þannig er til athugunar að Peak leggi einnig til körfuboltafatnað fyrir yngri landslið sambandsins; U20 lið karla, U18 lið karla og kvenna og U16 lið drengja og stúlkna.