19 júl. 2011Í liðinu að þessu sinni eru tveir bræður og hér kynnum við þann yngri en þó þann stærri til leiks en það er miðherjinn úr KR, Finnur Atli Magnússon. Fullt nafn: Finnur Atli Magnússon Hæð: 206cm Aldur: 25 Gælunafn: Finnslan, Big Fin Giftur / sambúð? í sambúð Börn: Engin Hvað eldaðir þú síðast? Geggjaða grillaða kjúklingabringu fyllta með mexikó osti sem góðvinur minn hann Elli kenndi mér Ertu matvandur, er eitthvað sem þú borðar alls ekki? Lauk, fæ hroll bara við það að bíta í lauk Hvað seturðu á pizzuna þína? Kjúkling, gular baunir, auka ost og svartan pipar Uppáhalds vefsíða? mbl.is eða vísir.is Frægasti vinur þinn á Facebook? Það er nú ekki margir vinir mínir frægir en það er Andri Vilbergsson maðurinn sem bjargaði lífi manns í vetur þegar hann féll ofaní tjörnina! Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki (ef já, hvernig þá?) Veit ekki með að vera hjátrúafullur en ég fer alltaf í sturtu fyrir leiki, þ.e. síðasta sem ég geri áður en ég mæti á leiki Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Hakeem Olajuwon Erfiðasti andstæðingur? Hlynur Bæringsson er alla veganna leiðinlegasti andstæðingurinn Sætasti sigurinn? Sigurinn gegn Stjörnunni í leik 4 sem tryggði okkur íslandsmeistaratitilinn í vetur. Mestu vonbrigði? Að tapa þrisvar heima gegn Snæfell í undanúrslitum í fyrra Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum í þitt lið, hver yrði það? Dirk Nowitzki Segðu okkur frá skemmtilegu / skondnu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar Thomas Sanders henti Brynjari upp í stúku í undanúrslitunum í vetur Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? Veturinn 2009 Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Mér fannst Arras í Frakklandi alveg yndislegur staður Vandræðalegasta augnablik? Blessaða rookie-hlaupið í Litháen Hver á ljótasta bílinn í liðinu? Slavinn okkar hann Pavel á bílnum sem KR reddaði honum Hver er fyndnastur í liðinu? Brynjar Þór Björnsson án þess að fatta það sjálfur Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Að við magnússon bræðurnir erum í raun og vera 4 en ekki 3 eins og flestir halda, Guðmundur Þór, Helgi Már, Finnur Atli og Hreggviður Steinar :) Uppáhalds: Lið í NBA: Dallas Mavericks Lið í Evrópska körfuboltanum: Leikmaður í körfu: Dirk Nowitzki Erlenda hljómsveit: Margar t.d the Killers, Arcade Fire.. Innlenda hjlómsveit: Hjálmar og Agent Fresco Bíómynd: Shawshank Redemption,Goodfellas og Die Hard klikkar seint nema síðasta myndin sem var ekki alveg nógu spes. Sjónvarpssería: SEINFELD