18 júl. 2011Haukur Óskarsson, leikmaður U20, spilar ekki fleiri leiki á Evrópukeppninni í Bosníu. Haukur meiddist gegn Belgum í síðasta leik og samkvæmt læknisráði á hann að hvíla næstu daga. Haukur lenti í samstuði við andstæðing og fékk smá hnykk á hálsinn. Mun hann því horfa á liðsfélaga sína í dag þegar þeir mæta Hvít-Rússum kl. 18.00 að íslenskum tíma.