14 júl. 2011Strákarnir í U20 töpuðu sínum fyrsta leik í Evrópukeppni U20 ára liða í B-deild sem fram fer í Bosníu. Strákarnir mættu heimamönnum í sínum fyrsta leik og voru íslensku strákarnir með yfirhöndina í leiknum þar til í lok þriðja leikhluta þegar Bosníumenn komust yfir og þá varð staðan 62-61. Heimamenn voru vel studdir af stuðningsmönnum sínum í íþróttahúsinu í kvöld og eftir spennandi fjóra leikhluta höfðu Bosnínumenn sigur 82-78. Það vantaði herslumuninn svo íslensku strákarnir hefðu farið með sigur af hólmi en þrátt fyrir tapið gefur þessu leikur góð fyrirheit fyrir næstu leiki á mótinu. Strákarnir mæta Ísrael á morgun föstudag kl.15.30 að íslenskum tíma. [v+]http://live.fibaeurope.com/www/Game.aspx?acc=1&gameID=8873[v-]Tölfræði leiksins[slod-]