11 júl. 2011Síðastur í röðinni af leikmönnum U-20 ára landsliðsins sem kynntur er til leiks er Sigurður Þórarinsson. Nafn: Sigurður Þórarinsson Hæð: 200 cm Fæðingarár: 1991 Gælunafn: Siggi Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Úrslitaleikur U-18 á norðurlandamótinu 2009. Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Úrslitaleikur U-18 á norðurlandamótinu 2009. Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Ætli það sé ekki einhverskonar pasta. Síðan má ekki gleyma því að skella í sig svona eins og einum kaffibolla fyrir upphitun. Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Ekkert sérstakt sem ég man eftir þessa stundina. Hvernig slakar þú best á: Upp í rúmmi að horfa á góða bíómynd sem ég hef helst séð amk tvisvar sinnum áður, svona til að þurfa örugglega ekki að einbeita sér til að halda þræðinum. Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Erfitt að segja, vill samt meina að Martin Hermannsson sér nokkuð efnilegur. Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Nú veit ég ekki alveg, margir góðir sem hafa spilað hér og erfitt að gera upp á milli. Myndi hinsvegar hiklaust segja að George Byrd væri einn sá eftirmynnilegasti. Svona til að nefna einhvern á nafn. Erfiðasti andstæðingurinn: Darrel Flake, það var skuggalega leiðinlegt að eiga við hann á blokkinni, hvort heldur sem það var í vörn eða sókn. Auðveldasti andstæðingurinn: Ægir Þór Steinarsson, ég myndi segja að taki svona álíka mikið á að spila “1on1 fullcourt” við Ægir eins og að borða cheerios-skál í morgunmat. Léttasti mótherji á æfingum: Haukur Óskarsson þegar maður kemur honum á low-blokkina, drengurinn er ekki nema svona 25 kg með skólatösku. Hver er trúðurinn í hópnum: Held að það hljóti að vera Ragnar NaT Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Daði Berg “The Mirror” Grétarsson hatar ekki spegilinn. Hver er kvennabósinn í hópnum: Ég myndi segja Ragnar NaT Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Í Borgarneshöllinni. Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Daði Berg, með Odd og Arnþór sem close second. Hvenær fórstu síðast í strætó: Einhverntímann í vor. Vaskar þú upp heima hjá þér: Set af og til í uppþvottavélina. Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Góða tölvu og háhraða internettenginu. ( Auk helstu nauðsynja að sjálfsögðu). Frasi/setning eða fleyg orð (sem þú notar): Mhhmmm. / Svekkjandi! Uppáhalds: Lið í NBA: LA Lakers. Lið í Evrópska körfuboltanum: Pass! Leikmaður í körfu: Dirk Nowitzki. Erlenda hljómsveit: Metallica. Innlenda hjlómsveit: Sálin. Bíómynd: Shawnshank Redemtion.