11 júl. 2011U-20 ára landslið karla heldur utan í fyrramálið en framundan er B-deild í Evrópukeppni U-20 ára landsliða. Fyrsti leikur liðsins verður gegn heimamönnum fimmtudaginn 14. júlí og hefst leikurinn klukkan 21:15 að staðartíma sem er 19:15 að íslenskum tíma. Leikir Íslands í riðlinum: Fimmtudagur 14. júlí Ísland - Bosnía 21:15 Föstudagur 15. júlí Ísland - Ísrael 17:30 Sunnudagur 17. júlí Ísland - Belgía 14:00 Mánudagur 18. júlí Ísland - Hv.Rússland 20:00 Eftir riðlakeppnina kemur í ljós hvaða leið við förum og hverjir verða næstu andstæðingar okkar. Allir tímar eru að staðartíma en tveggja tíma munur er á Íslandi og Bosníu. Hægt verður að fylgjast með mótinu og leikjum íslenska liðsins [v+]http://u20men.fibaeurope.com/enDivB/[v-]hér[slod-]