10 júl. 2011Næstur í röðinni er Arnþór Freyr Guðmundsson leikmaður Fjölnir en hann verður í treyju númer 14 í Bosníu. Nafn: Arnþór Freyr Guðmundsson Hæð: 187 Fæðingarár: 1991 Gælunafn: Addú Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Þeir hafa verið margir skemmtilegir en úrslitaleikurinn með U16 landsliðinu árið 2007 stendur mest upp úr þegar við urðum fyrst norðurlandameistarar Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Þegar við vorum að spila í 1. deildinni fyrir tveimur árum með Fjölni á mótí Val á útvelli og unnum upp 23 stiga forskot á síðustu 5 mínútunum og unnum svo leikinn með 1 stigi Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Mjög misjafnt, oftast förum við nokkrir liðsfélagar eitthvað saman að borða í hádeginu á leikdegi Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Amazing með Kanye West Hvernig slakar þú best á: Með góða tónlist uppi í rúmi Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Mattarnir úr KR eru mjög efnilegir Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Ég held að Marcus Walker sé mjög líklega einn af þeim betri könum sem hafa spilað á Íslandi . Erfiðasti andstæðingurinn: Ég sjálfur Auðveldasti andstæðingurinn: Enginn sérstakur Léttasti mótherji á æfingum: Það er enginn auðveldur í okkar liði Hver er trúðurinn í hópnum: Ægir Þór Steinarsson fær þennan titil. Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Daði og Martin eru duglegir í því Hver er kvennabósinn í hópnum: Haukur Pálsson Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Dalhúsum Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Daði Berg Hvenær fórstu síðast í strætó: Einhvern tímann Apríl, hrikalega leiðinlegt að ferðast í strætó Vaskar þú upp heima hjá þér: Það er allavega orðið það langt síðan að ég man ekki hvenær það var síðast Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Síma, tölvu mat og svo væri ekkert verra að vera með einhvern klárann félaga Frasi/setning eða fleyg orð (sem þú notar): de er so godt Uppáhalds: Lið í NBA: Orlando Magic Lið í Evrópska körfuboltanum: Ekkert sérstakt Leikmaður í körfu: Lebron James Erlenda hljómsveit: Atmosphere Innlenda hjlómsveit: Dikta Bíómynd: American History X