9 júl. 2011Næstur í kynningu af leikmönnum U-20 ára liðsins er Emil Barja leikmaður Hauka: Nafn: Emil Barja Hæð: 194 cm Fæðingarár: 1991 Gælunafn: High Flyer, Mr. Domination, the Spanish destroyer og fleiri sem ég hef verið kallaður Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Leikirnir í úrslitakeppninni í ár á móti Snæfelli Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Þegar við urðum Íslandsmeistarar með Haukum í Unglingaflokki Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: kjúkling Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Jump með Van Halen Hvernig slakar þú best á: Horfi á Lion King Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Kári Jónsson Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Steve Johnson sem spilaði með Haukum fyrir nokkrum árum Erfiðasti andstæðingurinn: Semaj Inge Auðveldasti andstæðingurinn: tók einu sinni leik við LeBron James og fannst hann alveg frekar auðveldur Léttasti mótherji á æfingum: Haukur óskars, er aðeins búin að læra á hann eftir að vera búin að æfa með honum í 10 ár Hver er trúðurinn í hópnum: Fjölnisstrákarnir eru ágætir. Ægir, Tommi, Arnþór og Haukur pals og svo Raggi auðvitað Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Daði Berg Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Íþróttahúsinu á Strandgötu í Hafnarfiðrinum Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Daði Berg og Oddur Hvenær fórstu síðast í strætó: fyrir svona mánuði held ég Vaskar þú upp heima hjá þér: Nei en ég set í uppþvottavélina Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Ipad til að geta spilað Angry Birds Uppáhalds: Lið í NBA: Atlanta Hawks Lið í Evrópska körfuboltanum: Barcelona Leikmaður í körfu: Rudy Fernandez Erlenda hljómsveit: Kings of Leon Innlenda hjlómsveit: Dikta Bíómynd: Lion King