
7 júl. 2011Í treyju númer 10 er bakvörðurinn knái úr Hveragerði Oddur Ólafsson: Nafn: Oddur Ólafsson Hæð: 185.5 Fæðingarár: 1992 Gælunafn: Nei Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Bikarúrslitaleikur Unglingaflokks á móti Njarðvík tímabilið 2010 Eftirminnilegasta frammistaðan þín: 20 stig í fyrsta leikhluta á móti ÍR í Iceland-Express deildini 2010 Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Er ekki með neina fasta máltíð fyrir leik en eg reyni að borða sem fjölbreyttast. Appelsínusafi, ristað brauð og banani kemur samt sterkt inn. Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Remember the name- Fort Minor Hvernig slakar þú best á: Upp í sófa með létta músík á fóninum Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson og Haukur Helgi Pálsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Margir mjög efnilegir leikmenn á landinu í dag Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Mér fannst Jeb Ivey alltaf verulega góður Erfiðasti andstæðingurinn: Deuce Bello eða Ike Nwamu Auðveldasti andstæðingurinn: Enginn auðveldur Léttasti mótherji á æfingum: Martin er ekki mjög þungur allavega Hver er trúðurinn í hópnum: Klárlega hinn eini sanni Raggi Nat Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Mjög líklega Martin Hermanss Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Íþróttahöll Hveragerðis Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Allavega ekki ég! Daði Berg er líklegur Hvenær fórstu síðast í strætó: Fyrir 3 árum, 6 mánuðum og 22 dögum Vaskar þú upp heima hjá þér: Auðvitað geri ég það já Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Veiðistöng Frasi/setning eða fleyg orð (sem þú notar): Nota ekki frasa eða fleyg orð Uppáhalds: - Lið í NBA: Auðvitað Miami - Lið í Evrópska körfuboltanum: Horfi grátlega lítið á evrópskan bolta - Leikmaður í körfu: D-Wade - Erlenda hljómsveit: Muse er góð hljómsveit en uppáhalds tónlistarmaðurinn minn er Chris Brown - Innlenda hjlómsveit: Á enga uppáhalds hljómsveit hérna á Íslandi


