6 júl. 2011U20 ára lið Íslands heldur til Bosníu í Evrópukeppni U20 um miðjan þennan mánuð. Þar leikur Ísland í B-deild og einum af fjórum riðlum keppninnar í D-riðli. Mótherjar Íslands verða Belgía, heimamenn í Bosníu, Ísrael og Hvít-Rússar, allt hörku þjóðir og verðugir andstæðingar. Fram að brottför verða leikmenn liðsins kynntir en þeir voru fengnir til að svara nokkrum spurningum. Næstur í röðinni er leikmaður númer 7 en það er Fjölnismaðurinn úr Borgarnesi, Trausti Eiríksson: Nafn: Trausti Eiríksson Hæð: 199 cm Fæðingarár: 1991 Gælunafn: Tausi (takk Raggi) og Þröstur af nokkrum vel völdum. Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Úrslitaleikur NM 2007 og Bikarúrslitin í drengjaflokk 2010. Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Langt frá því að vera besta frammistðaan en ég man alltaf eftir að hafa verið dregin í viðtal eftir leik árið 2009 og titlaður sem langbesti leikmaður Skallagríms í þeim leik, ég skoraði hinsvegar ekki stig í leiknum. Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Fæ mér alltaf banana sirka klukkutíma fyrir leik annars er það ekkert sérstakt sem ég borða. Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Lose yourself – Eminem og Hyper Music – Muse Hvernig slakar þú best á: Í vaðlauginni að stela sólargeislum og heima uppí rúmmi að horfa á þætti. Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Haukur Páls og Ægir, eru samt eiginlega hættir að vera efnilegir. Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Marcus Walker Erfiðasti andstæðingurinn: Darrel Flake Auðveldasti andstæðingurinn: Haukur Páls og Martin á golfvellinum Léttasti mótherji á æfingum: Emil Barja meðan hann er puttabrotinn Hver er trúðurinn í hópnum: Ragnar Nadal en margir aðrir eiga sín móment. Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Martin og Daði Berg, ekki margir aðrir sem komast að. Hver er kvennabósinn í hópnum: Margir sem koma til greina en Raggi Nat er fremstur meðal jafningja held ég. Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Íþróttafjósinu í Borgarnesi og í Njarðvík. Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Ætli það séu ekki Addú eða Oddur. Ef þú myndir fá þér tattoo, hvernig væri það: Pottþétt eitthvað töff merki / munstur ofarlega á bakið. Vaskar þú upp heima hjá þér: Er ekki æstur í það en geri það ef það sé brýn nauðsyn. Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Einn bolta, körfu, mark og þá mun mér aldrei leiðast. Frasi/setning eða fleyg orð (sem þú notar): “Hatar ekki...” “Þá er ekki eftir neinu að bíða, en bíðum samt aðeins” Uppáhalds: - Lið í NBA: Ekkert sérstakt, bara allt annað en Lakers og Boston. - Lið í Evrópska körfuboltanum: Skallagrímur - Leikmaður í körfu: Brian Scalabrine - Erlenda hljómsveit: Coldplay, The Fray, Eminem og Chris Brown t.d. - Innlenda hjlómsveit: Sálin og Fræ