5 júl. 2011U20 ára lið Íslands heldur til Bosníu í Evrópukeppni U20 um miðjan þennan mánuð. Þar leikur Ísland í B-deild og einum af fjórum riðlum keppninnar í D-riðli. Mótherjar Íslands verða Belgía, heimamenn í Bosníu, Ísrael og Hvít-Rússar, allt hörku þjóðir og verðugir andstæðingar. Fram að brottför verða leikmenn liðsins kynntir en þeir voru fengnir til að svara nokkrum spurningum. Næstur í röðinni er leikmaður númer 6 og yngsti leikmaður liðsins, Martin Hermannsson: Nafn: Martin Hermannsson
 Hæð: 190 cm Fæðingarár: 1994 Gælunafn: Tinni Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Úrslitaleikurinn á NM á móti Svíum í U16. Tókum Svía með 28 stigum ! Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Úrslitaleikurinn á móti Njarðvík í drengjaflokki, og bikarúrslitaleikurinn á mót Njarðvík í 11.flokki. Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Það er misjafnt, oftast hafragraut um morguninn og pasta seinni partinn. Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Yfirgefinn með Valdimar, Hvernig slakar þú best á: Í láréttri stellingu. Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Arnór Hermannsson Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Marcus Walker/Brenton Birmingham/Damon Johnson Erfiðasti andstæðingurinn: Ægir Þór Steinarsson Auðveldasti andstæðingurinn: Matthías Orri Sigurðarson Léttasti mótherji á æfingum: Haukur Helgi Pálsson Hver er trúðurinn í hópnum: Daði Berg og Raggi Nat deila þessum titli. 

Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Allaveganna ekki ég. Ætli það séu ekki Trausti, Raggi, Addú, Ægir, Tommi, Haukur Páls, Haukur Óskars, Oddur, Siggi, Emil og Daði. Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Solna Hallen og Laugardalshöllinni Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Oddur Ólafsson Ef þú myndir fá þér tattoo, hvernig væri það: Það yrði eitthvað ritað á öðru tungumáli á höndina.

 
Vaskar þú upp heima hjá þér: Uppþvottavélin bjargar deginum. Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Bolta, vinina og mat ! Frasi/setning eða fleyg orð (sem þú notar): Bingó! Uppáhalds: Lið í NBA: L.A. Lakers Lið í Evrópska körfuboltanum: KR ! Leikmaður í körfu: Kobe Bryant/Ray Allen Erlenda hljómsveit: Er meira fyrir einstaklingana eins og Kaney West, Chris Brown og fleiri. Innlenda hjlómsveit: Hjálmar