4 júl. 2011Næsti leikmaðurinn sem við kynnum til leiks leikur í treyju númer 8 í U20 og er leikmaður Fjölnis: Nafn: Ægir Þór Steinarsson Hæð: 182 cm Fæðingarár: 1991 Gælunafn: Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Úrslitaleikurinn á NM 2007 á móti Svíþjóð, 69-67 fyrir Íslandi, epískur leikur á alla vegu ! Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Grindavík vs Fjölnir 14 . jan 2010 Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Fjölbreytta og Kolvetnaríka fæðu ásamt vatni ! Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: B.o.B “Beast Mode” Hvernig slakar þú best á: Í góðum vinahóp Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Martin Hermannsson Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Brandon Brown/Marcus Walker Erfiðasti andstæðingurinn: Marcus Walker Auðveldasti andstæðingurinn: Raggi Nadal á póstinum ! Léttasti mótherji á æfingum: Raggi Nadal á póstinum Hver er trúðurinn í hópnum: Tómas Heiðar ( sjúklega fyndinn gaur) Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Ég á ekki einu sinni að þurfa að svara þessu !! Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Álftanesi ( þar sem körfurnar eru í réttri hæð ) #BenniGumm Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Við erum flestir frekar prúðir, en ef ég ætti að segja einhvern þá væri það Daði Berg ( þó svo að hann dansi þæginlega á línunni þegar það kemur að samskiptum við dómara). Raggi Nadal gæti reyndar fengið eitt T fyrir dónaskap, ef við skyldum keppa við Dani. Það kemur einhver púki í Nadal þegar við keppum við Dani !! Uppáhalds: - Lið í NBA: New Jersey Nets - Lið í Evrópska körfuboltanum: Fjölnir - Leikmaður í körfu: Kemba Walker - Erlenda hljómsveit: ? - Innlenda hjlómsveit: TÆT Ef þú myndir fá þér tattoo, hvernig væri það: tribal tattú í andlitið Hvenær fórstu síðast í strætó: 2 mánuðir síðan held ég Vaskar þú upp heima hjá þér: Uppþvottavél Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Körfubolta, tvær körfur, löglegan völl, dómara, fólk á ritaraborðið, áhorfendur, tvö 12 manna lið og þjálfara ! og svo auðvitað nóg af mat ! Frasi/setning eða fleyg orð (sem þú notar): Ég Schnappaði bara, sló hann þvert og yfir moldarbeðið !