3 júl. 2011Leikmaður í treyju númer 5 í U-20 er Ragnar Nathanaelsson. Nafn: Ragnar Á. Nathanaelsson Hæð: 218 cm Fæðingarár: 1991 Gælunafn: Raggi NaT Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: S.P.K. gæti verið í honum klukkutímum saman. Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Man eftir leik Hamars og Hauka núna seinni hluta síðasta tímabils þar var ég bestur af Hamarsmönnum Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: Kjúlllann hennar Mömmu :D Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: össs það er nú misjafn. Á yngri árum var að harðasti Metal en í dag er það meira og minna “em&em” og “busta rímur” sem gera trikkið. Hvernig slakar þú best á: að liggja sultu slakur í sófanum með hjálma á fóninum. Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Hr. P. Ermolinskij Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Black & yellow Hornet. Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Pæli ekkert í könunum, bara hver er með boltann. Erfiðasti andstæðingurinn: Auðvelt, Raggi NaT Auðveldasti andstæðingurinn: Haukur Páls. Léttasti mótherji á æfingum: Martin Hermannsson, ekki nema 65 kg. Hver er trúðurinn í hópnum: Haukur Páls Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Martin og Trausti eru alltaf saman eftir æfingar að “gera sig sæta” eins og þeir kalla það. Hvenær fórstu síðast í strætó: strætó... hvað er það?? Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Frystukistuni í hveró Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: BiG Óww Ef þú myndir fá þér tattoo, hvernig væri það: Grjót hart akkeri eins og Signý Vaskar þú upp heima hjá þér: ég er aðalmaðurinn í eldhúsinu Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: hlýja konu Uppáhalds: - Lið í NBA: Denver Nuggets - Lið í Evrópska körfuboltanum: stend á gati :S - Leikmaður í körfu: Chris “Birdman” Anderson - Erlenda hljómsveit: Katy Perry - Innlenda hjlómsveit: vinir mínir í Hjálmum