3 júl. 2011
Í kvöld fór fram úrslitaleikur á Evrópumóti kvenna í Póllandi og þar áttust við Rússland og Tyrkland. Leiknum lauk með sigri þeirra rússnesku en þær unnu sannfærandi sigur 59:42 og eru þar með Evrópumeistarar næstu tvö árin. Það var Ólafur Rafnsson, forseti FIBA Europe sem afhenti fyrirliða liðsins sigurverðlaunin í kvöld í leikslok. Frakkar urðu í 3. sæti og þar með bronsið eftir sigur á Tékkum, 63:56. Að lokum sigraði Króatía íslandsvinina og spútnik lið Svartfjallalands í leik um 5. sætið 73:59.
Úrvalslið keppninnar var tilkynnt en það skipa: C Maria Stepanova (Rússland) C Nevriye Yilmaz (Tyrkland) F Eva Viteckova (Tékkland) G Sandra Mandir (Króatía) G Elena Danilochkina (Rússland) Elena Danilochkina var valin verðmætasti leikmaður keppninnar (MVP) en hún var með 55% 3-stiga nýtingu í keppninni, 13.9 stig að meðaltali og 50% nýtingu skota innan teigs.