2 júl. 2011Í dag eru 10 dagar þar til að U20 ára liðið heldur til Bosníu í Evrópukeppni U20. Þar leikur Ísland í B-deild og einum af fjórum riðlum keppninnar í D-riðli. Mótherjar Íslands verða Belgía, heimamenn í Bosníu, Ísrael og Hvít-Rússar, allt hörku þjóðir og verðugir andstæðingar. Fram að brottför verða leikmenn liðsins kynntir en þeir voru fengnir til að svara nokkrum spurningum. Fyrstur í röðinni er leikmaður númer 4, Tómas Tómasson: Nafn: Tómas Heiðar Tómasson Hæð: 187 cm Fæðingarár: 1991 Gælunafn: Tommi Svali Skemmtilegasti leikur sem þú hefur tekið þátt í: Úrslitaleikurinn á NM 2009 Eftirminnilegasta frammistaðan þín: Þegar ég varð íslandsmeistari með Fjölni í drengjaflokki í fyrra Hvað borðar þú (oftast) fyrir leik: kjúkling og pasta Hvaða lag “tjúnar” þig upp fyrir leiki: Flugufrelsarinn með Sigur Rós Hvernig slakar þú best á: í heitapottinum Besti íslenski leikmaðurinn í dag: Jón Arnór Stefánsson Efnilegasti íslenski leikmaðurinn í dag: Raggi Nat Besti kaninn sem spilað hefur á Íslandi: Brenton Birmingham Erfiðasti andstæðingurinn: Craig Schoen Auðveldasti andstæðingurinn: Bergþóra Holton Tómasdóttir Léttasti mótherji á æfingum: Ægir Þór Steinarsson spilar alltaf á hálfum hraða Hver er trúðurinn í hópnum: Raggi Nat Hver er lengst fyrir framan spegilinn eftir æfingar í hópnum: Daði Berg Grétarsson Í hvaða íþróttahúsi finnur þú þig best: Borgarnesi Hver er líklegastur til að fá tæknvillu í liðinu: Daði Berg hefur fengið nokkrar í gegnum tíðina Vaskar þú upp heima hjá þér: Jájá, einu sinni, tvisvar í viku Ef þú værir strand á eyðieyju, hvað yrðir þú að hafa hjá þér: Sólbekk og kodda fyrir hausinn.. kannski blað til að lesa Ef þú myndir fá þér tattoo, hvernig væri það: myndi örugglega fá mér kross á öxlina og láta svona borða ganga yfir krossinn. Á borðanum myndi svo standa “Blood Comes First”, af því að ég elska blóð. Hvenær fórstu síðast í strætó: Seinasta Norðurlandamóti örugglega Uppáhalds: - Lið í NBA: New York Knicks - Lið í Evrópska körfuboltanum: CB Granada - Leikmaður í körfu: Allan Houston - Erlenda hljómsveit: Veit ekki, hlusta á svo mikið - Innlenda hjlómsveit: Sigur Rós