1 júl. 2011Í dag 1. júlí hefjast æfingar að fullu hjá A-landsliðið karla fyrir Norðurlandamótið sem hefst 23. júlí næstkomandi í Sundsvall, Svíþjóð. Landsliðið kom saman eina helgi snemma í júní og þar æfði 22 manna hópur með Peter Öqvist þjálfara landsliðsins, sem kynntur var á blaðamannafundi við sama tækifæri, ásamt aðstoðarþjálfurunum Helga Jónasi Guðfinnssyni og Pétri Má Sigurðssyni. Í júlí verður æft nánast daglega fram að brottför sem verður 20. júlí til Svíþjóðar en þá munu strákarnir okkar æfa á keppnisvellinum í Sundsvall fyrir mót. Landsliðsmennirnir munu núna æfa tvisvar á dag, þar sem fyrir hádegi eru lyftingar og skotæfingar og svo seinnipartinn eru farið í taktík og skipulag.